14 starfsmenn verðlaunaðir

14 starfsmenn verðlaunaðir fyrir fullkomna mætingu á árinu 2007
-liður í heilsueflingarátaki fyrirtækisins


Samherji hf. hefur veitt 14 starfsmönnum sínum sérstök hvatningarverðlaun fyrir fullkomna mætingu til vinnu á árinu 2007. Starfsmennirnir fengu hver um sig ferðaávísun að upphæð 100 þúsund krónur. Afhending hvatningarverðlaunanna markar lok fyrsta starfsársins í gagngerri heilsueflingu innan fyrirtækisins.
Það er yfirlýst stefna Samherja að stuðla að bættri heilsu og vellíðan starfsmanna sinna. Á liðnu ári hóf fyrirtækið átak í því skyni að hvetja starfsmenn sína til markvissrar heilsueflingar á öllum sviðum. Átakið var kynnt öllum starfsmönnum Samherja í ársbyrjun og þeir hvattir til að taka virkan þátt í því.
Einn liður í átakinu er að greiða niður kostnað við líkamsrækt og ýmsa íþróttaiðkun starfsmanna. Í öðru lagi var gerður samningur við Heilsuverndarstöðina ehf. um að fyrirtækið veitti starfsmönnum Samherja persónulega ráðgjöf í málum er snúa að heilsu og bættri líðan, þeim að kostnaðarlausu. Ennfremur voru reglur um veitingu fyrrnefndra hvatningarverðlauna kynntar.
Þess má jafnframt geta að á undanförnum árum verið unnið markvisst að úrbótum á vinnuaðstöðu starfsmanna í öllum starfsstöðvum Samherja, í samráði við vinnueftirlit og aðkeypta ráðgjafa, með það að markmiði að starfsmannaaðstaðan yrði eins og best gerist.
Þessi nýbreytni hefur mælst mjög vel fyrir á meðal starfsmanna Samherja. Því verður haldið áfram á braut heilsueflingar á yfirstandandi ári og hvatningarverðlaunin veitt öðru sinni í febrúar 2009. 

Eftirtaldir starfsmenn hlutu hvatningarverðlaun Samherja fyrir árið 2007: 
Jóhannes Már Jóhannesson – Björgúlfur EA-312
Valur Höskuldsson – Björgvin EA-311
Gunnar Eiríksson – Hausaþurrkun
Atli Dagsson – Dalvík
Phanthong Saraphat - Dalvík
Sigrún Aðalsteinsdóttir – Dalvík
Samúel Björnsson – Margrét EA-710
Kristinn Helgason – Íslandsbleikja
Ólafur T Hermannsson – Oddeyrin EA-210
Ingvi Eiríksson – Strýta
Sigurður Pálsson – Vilhelm Þorsteinsson EA-11
Hanna Dóra Hermannsdóttir – skrifstofa
Sigurður Gunnarsson – Víðir EA-910
Illugi Pálsson – Þorvarður Lárusson SH-129