Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. grein 4.04 í samþykktum félagsins
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. laga nr. 2/1995
3. Önnur mál löglega upp borin
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins fyrir árið 2001 munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Samherja hf.