Aðalfundur Samherja hf. 2001

Aðalfundur Samherja hf. verður haldinn þriðjudaginn 10. apríl 2001 í Nýja Bíói á Akureyri og hefst kl. 14:00.

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. grein 4.04 í samþykktum félagsins
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. laga nr. 2/1995
3. Önnu mál löglega upp borin

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins fyrir árið 2000 munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Athygli er vakin á því að ársskýrslu félagsins verður hægt að hlaða niður af heimasíðu fyrirtækisins á PDF formi (Acrobat Reader) frá og með þriðjudeginum 10. apríl.