Aðalsteinn Helgason ráðinn fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf.

Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Samherja hf., hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað og mun hann taka við nýja starfinu þann 1. janúar 2006.

 

Aðalsteinn Helgason er 56 ára að aldri, viðskiptafræðingur að mennt. Hann hefur starfað hjá Samherja hf. og tengdum félögum sl. 12 ár, lengst af sem framkvæmdastjóri landvinnslu félagsins.

“Ég hef haft mikil og góð samskipti við Síldarvinnsluna á liðnum árum og hlakka til að vinna með öllu því ágæta fólki sem þar starfar,” segir Aðalsteinn. Hann segir hins vegar að erfitt verði að kveðja samstarfsfólk sitt hjá Samherja. “Hér hef ég starfað í vel á annan áratug með mjög góðu fólki. Sá tími hefur verið ánægjulegur og við höfum tekist á við stór og krefjandi verkefni af samheldni og metnaði. Ég er stoltur af því að hafa verið hluti af þeirri liðsheild,” segir Aðalsteinn.

Stjórn Samherja hf. þakkar Aðalsteini vel unnin störf á liðnum árum og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.