Afmælistertur um borð í öllum skipum Samherja, sjötugum Kristjáni Vilhelmssyni til heiðurs

Kristján Vilhelmsson / mynd samherji.is
Kristján Vilhelmsson / mynd samherji.is

Áhafnir allra skipa Samherja gæddu sér á dýrindis afmælistertum í tilefni þess að Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja fagnar í dag 70 ára afmæli.

Kristján er einn af stofnendum Samherja og hefur alla tíð verið einn af helstu stjórnendum félagsins og stýrt útgerðarsviði þess.

Kokkar skipanna skreyttu afmælisterturnar með sínum hætti, afmælisbarninu til heiðurs og skipstjórar sendu honum afmæliskveðjur frá áhöfnum. Sömu sögu er að segja um ýmsar starfsstöðvar Samherja, þar var haldið upp á tímamótin.

Frumkvöðull og leiðandi í þróunarverkefnum

Togarafloti Samherja hefur í áranna rás verið í stöðugri þróun, þar sem áhersla er lögð á náið samstarf Samherja og framleiðendur búnaðar. Í mörgum tilvikum er um að ræða sérhæfðar lausnir sem byggja á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, sem við Íslendingar getum verið stoltir af. Kristján hefur stuðlað að og verið leiðandi í slíkum þróunarverkefnum.

Farsælt samstarf

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segist samgleðjast frænda sínum á þessum tímamótum.

„Kristján er traustur, framsýnn og frjór í hugsun. Samstarf okkar hefur verið afar farsælt í gegn um tíðina, bæði þegar vel hefur árað og þegar blásið hefur á móti. Það er ekki sjálfgefið að eiga slíka sögu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Starfsfólk Samherja sendir Kristjáni Vilhelmssyni bestu hamingjuóskir í tilefni tímamótanna.

Eins og fyrr segir var afmælinu fagnað um borð í öllum skipum Samherja í dag og látum við myndir fylgja hér með.