Rétt viðbrögð 19 manna áhafnar Normu Mary komu í veg fyrir að illa færi í gær þegar eldur kom upp um borð á vinnsludekki togarans, þar sem hann var á þorskveiðum í Barentshafi. Enginn slasaðist í aðgerðunum og búið var að ráða niðurlögum eldsins þegar Norska strandgæslan kom til aðstoðar. Skipið mun halda til hafnar á Akureyri innan tíðar eða þegar Norska strandgæslan hefur fullvissað sig um að ekki sé hætta á að eldurinn kvikni að nýju. Á Akureyri verða skemmdir skoðaðar og metnar áður en viðgerð hefst.
„Það er alltaf mikil hætta þegar eldur kemur upp í skipi úti á sjó. Við erum fyrst og fremst þakklátir réttum viðbrögðum áhafnarinnar sem kom í veg fyrir að ekki fór verr um borð í Normu“, segir Óskar Ævarsson útgerðarstjóri Onward Fishing.
Norma Mary er togskip í eigu Onward Fishing Company í Skotlandi sem er dótturfélag Samherja hf.
Virðingarfyllst
Haraldur Grétarsson
Framkvæmdastjóri Onward Fishing