Akureyrin EA seld til Onward Fishing Company

Hið fornfræga skip Samherja
Hið fornfræga skip Samherja Akureyrin EA-110
Hið fornfræga skip Samherja
Hið fornfræga skip Samherja Akureyrin EA-110

Breytingar á skipastóli Samherja hf.:

Ákveðið hefur verið að selja Akureyrina EA-110 til Onward Fishing Company, dótturfélags Samherja hf. í Bretlandi, og mun skipið afhent í byrjun september.

 

Akureyrin EA, sem er 882 brúttólesta skip var smíðað í Póllandi á árinu 1974. Það var fyrsta skip í eigu Samherja hf og hefur verið gert út sem frystitogari frá árinu 1983. Akureyrin hefur verið afar farsælt skip og hefur ávallt verið meðal aflahæstu skipa landsins. Ekki er reiknað með að til uppsagna komi við söluna og mun sjómönnum boðið pláss á öðrum skipum félagsins.

Ný Akureyrin EA-110


Eins og fram hefur komið þá hefur Samherji nýlega keypt Sléttbak EA sem áður var í eigu Útgerðarfélags Akureyringa og fær Samherji skipið afhent í dag. Skipið fer í slipp áður en það heldur til veiða á vegum félagsins og fær nafnið Akureyrin EA-110.

Samhliða því að Onward fær Akureyrina verður Normu Mary (ex. Snæfugl) skilað til Síldarvinnslunnar en Onward hefur haft skipið á leigu frá þeim undanfarin ár.

Fréttatilkynning frá Samherja hf. föstudaginn 9. ágúst 2002. Nánari upplýsingar gefur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., í síma 460 9000.