Björgúlfur EA yfir milljarðinn

Björgúlfur EA 312
Björgúlfur EA 312

Björgúlfur EA 312 kom til heimahafnar á Dalvík í dag með fullfermi eða 115 tonn af fiski.  Uppistaðan er þorskur sem fer beint til vinnslu í frystihúsinu á Dalvík.  Aflaverðmæti í túrnum eru rúmar 25 milljónir króna.  Með þessari löndun hefur Björgúlfur veitt fyrir yfir 1000 milljónir króna á árinu og er það í fyrsta skipti sem skipið veiðir fyrir meira en milljarð á einu ári. Í tilefni af þessum tímamótum var áhöfninni færð  rjómaterta við heimkomuna.

Björgúlfur hefur alla tíð aflað fyrir fiskvinnsluna á Dalvík frá því að hann kom nýr árið 1977.  "Árangurinn  í ár er glæsilegur ekki síst í ljósi þess að skipið var stopp í 5 vikur í sumar.  Á síðasta ári var aflaverðmæti skipins 970 milljónir en það eru líklega 3 landanir eftir á árinu svo skipið fer vel yfir milljarðinn í ár.  Þrátt fyrir mikinn afla hefur áhöfnin lagt sig fram um að skila úrvalshráefni fyrir vinnslu félagsins, en gæði og sölumöguleikar stýra alfarið veiðum skipsins á hverjum tíma",  segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðar Samherja hf.

2010_bjorgulfur_terta_aflamet_400
 Kristján Salmannsson skipstjóri og Oliver Karlsson afleysingarskipstjóri við tertuna góðu