Í gær var fastráðnum starfsmönnum Samherja og sumarafleysingafólki, samtals 830 manns sent bréf í pósti frá Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra og Kristjáni Vilhelmssyni framskvæmdastjóra útgerðarsviðs.
Hér fyrir neðan er texti bréfsins.
Ef smellt er á myndina opnast PDF skjal með bréfinu
Bréf til
starfsmanna
Nokkrar staðreyndir um starfsemi Samherja
Ágætu starfsmenn.
Samherji er í forystusveit í sjávarútvegi á Íslandi. Við höfum staðið okkur vel í veiðum, vinnslu, uppbyggingu fiskeldis og markaðssetningu afurða. Við leggjum okkur fram um að nýta hráefnið sem best og skapa sem mest verðmæti fyrir íslenskt þjóðarbú. Hversu vel hefur til tekist er ekki síst því að þakka hversu vel mönnuð áhöfnin er – hversu góðu verki þið hafið skilað. Engu að síður hafa bæði stjórnendur og starfsfólk Samherja mátt sitja undir ágjöf vegna starfa sinna.
Því miður hefur því sem vel er gert í íslenskum sjávarútvegi lítið verið haldið á lofti. Mikið ber á rangfærslum í umræðunni og þekkingarleysi þeirra sem ganga harðast fram með fullyrðingum er áberandi. Oftar en ekki er beinlínis farið með rangt mál, vísvitandi eða óvart. Við höfum margoft heyrt að Samherji flytji mikið magn af óunnum fiski til vinnslu erlendis, nýlega lásum við t.d. að fyrirtækið mokaði upp fiski í íslenskri lögsögu, sem það flytti óunninn úr landi. Við erum með þessu beinlínis sökuð um að draga úr eflingu atvinnu og hagvaxtar á Íslandi. Þetta er víðsfjarri sannleikanum og vegna endurtekinna rangra staðhæfinga um starfsemi Samherja langar okkur, ágæta starfsfólk, að fara aðeins yfir með ykkur hvað við höfum verið að gera síðustu mánuði.
Fiskurinn hvergi meira unninn en hjá Samherja
Einn helsti styrkur íslenskrar fiskvinnslu er fjölbreytni og sérhæfing. Sum fyrirtæki eru í saltfiskvinnslu, önnur í léttsöltuðum, frystum afurðum, enn önnur í þurrkuðum afurðum – og þannig mætti áfram telja. Sumar vinnslustöðvar vinna fiskinn lítið, aðrar meira. Samherji hefur fjárfest í tækjum og búnaði til að framleiða verðmætustu afurðirnar á markaðinum. Það eru þessar afurðir og vinnsla þeirra sem krefjast mests vinnuafls og flestra vinnustunda miðað við hráefnið.
Landvinnsla Samherja vann úr samtals 12.500 tonnum, aðallega þorski, á síðasta fiskveiðiári. Á sama tíma var um borð í frystiskipum Samherja unnið úr 1.200 tonnum af þorski sem veidd voru innan íslenskrar lögsögu. Á yfirstandandi fiskveiðiári gerum við ráð fyrir að vinna úr talsvert meira magni í landvinnslum okkar þar sem Samherji keypti ÚA fyrr á árinu.
Við fullyrðum að ekkert fyrirtæki á Íslandi vinnur fiskinn meira en Samherji – að ekkert annað fiskvinnslufyrirtæki hér á landi notar jafnmargar vinnustundir við vinnslu hráefnisins. Landvinnsla Samherja sendir aldrei frá sér óunnið flak til útlanda. Allur fiskur er unninn og verðmæti sköpuð úr hverjum einasta hluta. Það er hvergi hærra vinnslustig en hjá okkur, hvergi fleiri vinnustundir sem liggja að baki afurðunum. Við erum stolt af þeirri staðreynd!
Við viljum nefna dæmi máli okkar til stuðnings. Dagana 3. til 9. október sl. framleiddi Samherji 115 tonn af ferskum þorskhnökkum. Sá fiskur var nær allur veiddur af togskipum Samherja. 110 tonn af þorskhnökkum voru flutt fersk til Frakklands. Gera má ráð fyrir að um 600.000 Frakkar (m.v. að hver skammtur sé 185 g) hafi borðað þessa frábæru afurð í liðinni viku. Það er í sjálfu sér ótrúleg tala og ólíklegt að önnur fyrirtæki hafi fengið jafn marga Frakka til að borða ferska þorskhnakka á einni viku.
Miðað við allar þær afurðir, frystar eða ferskar, sem unnar voru úr þeim þorski sem kom til vinnslu hjá landvinnslu Samherja við Eyjafjörð 3. til 9. október, má gera ráð fyrir að rúmlega 2 milljónir manna þurfi til að borða þær. Að auki munu þurrkuðu afurðirnar væntanlega nægja í eina máltíð fyrir 1-2 milljónir manna. Það er verkefni markaðs- og söludeildar félagsins að finna kaupendur að þessum afurðum. Við skulum ekki gleyma því að í markaðsstarfinu felst líka mikil verðmætasköpun.
Innflutningurinn tífalt meiri en útflutningurinn!
Fullyrðingin um að Samherji moki upp fiski í íslenskri lögsögu og flytji hann óunninn úr landi, er eins fjarri sannleikanum og hugsast getur. Staðreyndin er allt önnur.
Það sem af er þessu ári hefur Samherji flutt inn rúmlega 10 sinnum meira magn af fiski til vinnslu en fyrirtækið hefur flutt út, m.v. óaðgerðan, heilan fisk. Það sem af er þessu ári hafa, af skipum Samherja, verið flutt út um 520 tonn af ferskum, heilum fiski. Hér er aðallega um að ræða ufsa, karfa, hlýra og steinbít. Á sama tíma hefur Samherji flutt inn 5.200 tonn, aðallega þorsk, af erlendum skipum til vinnslu í landvinnslum félagsins hér á landi. Þessi innflutningur okkar hefur skapað mikla atvinnu hér á landi og skilað verulegum tekjum inn í íslenskt þjóðarbú.
Þegar tekið er tillit til launa, löndunar, umbúða, flutningskostnaðar o.fl. má gera ráð fyrir að virðisaukinn af vinnslu þessa innflutta hráefnis hér á landi sé í kringum 650 milljónir króna. Að okkar mati er hér um afrek að ræða.
Sjávarútvegur í erlendri eigu?
Reynt hefur verið að gera það tortryggilegt að “al-íslenska” fyrirtækið Samherji sé með um 70% af umsvifum sínum erlendis. Sumir virðast ekki átta sig á því að umsvif okkar erlendis eru fyrst og fremst fólgin í því að Samherji og dótturfélög eiga hlutabréf í fyrirtækjum sem eru al-þýsk, al-pólsk, al-færeysk, o.s.frv. Það er auðvitað hið besta mál, enda vinnum við markvisst og meðvitað að því að láta íslenskt hagkerfi njóta þessarar eignaraðildar okkar eins mikið og kostur er.
Við heyrum oft farið rangt með staðreyndir sem tengjast fiskvinnslu Icefresh GmbH í Cuxhaven í Þýskalandi, sem Samherji er stærsti hluthafinn í. Við viljum upplýsa það hér að af þeim fiski sem þar er unninn á þessu ári, koma einungis um 7% af skipum Samherja. Hins vegar koma um 60% frá Noregi og einnig er keyptur fiskur þangað til vinnslu, m.a. frá Danmörku, Færeyjum og Frakklandi.
Samningar upp á 900 milljónir króna!
Eins og áður segir beitir Samherji sér markvisst fyrir því að þau fyrirtæki sem félagið á eignarhlut í kaupi vörur og þjónustu hér á landi. Til marks um það viljum við nefna að á einungis hálfu ári – frá maí til október 2011 – hafa erlend fyrirtæki, sem Samherji á hlut í, gert samninga við íslensk iðnfyrirtæki upp á um 900 milljónir króna! Við endurtökum – 900 milljónir króna! Hér er um að ræða stór viðhalds- og nýsmíðaverkefni, breytingar á skipum og endurnýjun á fiskvinnslubúnaði. Hér erum við m.a. að tala um kaup á búnaði og tækjum af fyrirtækjum á borð við Slippinn, Rafeyri, Frost, 3X Stál og Marel.
Og það sem meira er: Fyrir öll þessi vöru- og þjónustukaup hér á landi er greitt í erlendum gjaldeyri, sem er þjóðinni afar verðmætur eins og málum er háttað.
Ef eignaraðild Samherja í þessum erlendu fyrirtækjum væru ekki til staðar myndi lítið sem ekkert af þessum miklu umsvifum þeirra skila sér inn í íslenska hagkerfið. Að beinni tilstuðlan Samherja koma þessi félög hingað með stór verkefni sem skapa gríðarlega atvinnu. Við fullyrðum að ekkert annað íslenskt fyrirtæki er að gera nokkuð sambærilegt við þetta, hvorki í sjávarútvegi né á öðrum sviðum atvinnulífsins. Erlend umsvif Samherja eru því fyrst og síðast jákvæðar fréttir fyrir íslenskt þjóðfélag – og af því erum við stolt.
Viðskipti við rúmlega 200 aðila vegna landana í Hafnarfirði!
Íslenskt atvinnulíf nýtur góðs af umsvifum Samherja erlendis á fleiri sviðum. Skip í eigu erlendra fyrirtækja, sem Samherji á hlut í, landa oft á Íslandi fyrir okkar tilstilli. Sem dæmi má nefna að tvö skip þýska fyrirtækisins DFFU hafa landað nokkrum sinnum í Hafnarfjarðarhöfn á þessu ári. Til að fá að landa þarf DFFU að greiða allt að 5.000 kr. fyrir hvert tonn af fiski, sem er há upphæð. Samsvarandi gjald í Þýskalandi er 0, í Noregi nánast 0 og í Færeyjum um 500 kr. Ef skipin hefðu flutt inn t.d. byggingavörur hefði þurft að greiða 300-500 kr. fyrir hvert landað tonn, eða u.þ.b. 10 sinnum minna!
Félagið keypti ýmsar vörur og þjónustu í tengslum við þessar landanir. Þar má nefna löndunarþjónustu, flutninga, umbúðir, olíuvörur, viðgerðarþjónustu, matvörur, flugfarmiða – og þannig mætti lengi telja. Alls hafa rúmlega 200 íslensk fyrirtæki sent DFFU reikninga vegna landana skipa þess hér á landi. Það segir sína sögu um hversu mikil umsvif slíkar landanir skapa í íslensku hagkerfi.
Samantekið hafa erlend hlutdeildarfélög Samherja keypt vörur og þjónustu hér á landi fyrir hundruð milljónir króna það sem af er árinu.
Samantekt
Ágætu starfsmenn Samherja.
Það sem við höfum rakið hér að framan hefur vonandi hrakið þær rangfærslur og ósannindi sem ýmsir leyfa sér að halda á lofti um störf ykkar. Staðreyndirnar tala sínu máli:
Við skulum ekki láta rangar staðhæfingar trufla okkur í störfum okkar. Við sem stjórnum Samherja þurfum að standa okkur betur í að upplýsa ykkur um starfsemina. Saman skulum við halda þeim upplýsingum á lofti í þeirri von að flestir vilji hafa það sem sannara reynist. Sannleikurinn er nefnilega sá að við öll sem störfum hjá Samherja höfum verið að gera frábæra hluti, þótt markmið okkar sé áfram að gera enn betur.
Höldum áfram að skapa sem allra mest verðmæti úr því frábæra hráefni sem við erum að veiða, vinna, ala og markaðssetja.
Höldum áfram að beita okkur fyrir því að koma með verkefni inn í landið, sem önnur fyrirtæki og aðrar atvinnugreinar njóta góðs af.
Höldum okkar striki!
Með kærri kveðju,
Þorsteinn Már Baldvinsson
Kristján Vilhelmsson