Baldvin Þorsteinsson seldur til DFFU í Þýskalandi
-en Hannover NC keypt í staðinn og breytt í fjölveiðiskip
Samherji hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við útgerðarfyrirtækið Deutsche Fischfang Union í Cuxhaven í Þýskalandi (DFFU) um sölu frystiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA-10 til DFFU. Miðað er við að skipið verði afhent nýjum eiganda í febrúar á næsta ári. Jafnframt er gert ráð fyrir að Samherji hf. kaupi frystiskipið Hannover NC-100, áður Guðbjörg ÍS, af DFFU og því verði breytt í fjölveiðiskip, sem geti veitt og unnið rækju, bolfisk og uppsjávarfisk um borð. Gert er ráð fyrir að fjárfesting Samherja hf. í þessum viðskiptum við DFFU nemi sem svarar 265 milljónum króna.
Baldvin Þorsteinsson EA-10, sem er 995 brúttólesta frystiskip, var smíðaður í Noregi fyrir Samherja hf. og kom skipið til landsins snemma árs 1992. Útgerð skipsins hefur ávallt gengið mjög vel og flest þau ár sem Samherji hefur gert það út hefur það verið aflahæst og/eða með mest aflaverðmæti hérlendra fiskiskipa. Á þeim níu árum sem Samherji hefur gert það út er heildarafli þess tæplega 70 þúsund tonn.
Hannover verði fjölveiðiskip
|
Samhliða sölu Baldvins Þorsteinssonar EA til DFFU í Þýskalandi er eins og áður segir gert ráð fyrir að Samherji hf. kaupi frystiskipið Hannover NC-100 af Deutsche Fischfang Union. Skipið er 1.225 brúttólestir að stærð, smíðað árið 1994. Nú er unnið að gerð samninga við skipasmíðastöð í Lettlandi um gagngerar breytingar á skipinu. Áætlað er að lengja Hannover um 18 metra og breyta því í fjölveiðiskip, svipuðu Vilhelm Þorsteinssyni EA-11. Gert er ráð fyrir að ráðist verði í þessar breytingar fljótlega á nýju ári og að Samherji geti sent skipið á veiðar í lok maí n.k. Áætlaður kostnaður við breytingarnar á Hannover er um 400 milljónir króna. Eftir breytingarnar verður Hannover 85 metrar að lengd og frystilestar skipsins um 1600 rúmmetrar að stærð, sem er allt að helmings aukning frystirýmis frá því sem nú er. Nú eru um borð í Hannover fullkomnar vinnslulínur fyrir bolfisk og rækju, en jafnhliða lengingu skipsins verður þar komið fyrir vinnslulínu fyrir uppsjávartegundir. Gert er ráð fyrir að skipið geti fryst 140-150 tonn af uppsjávarfiski á sólarhring og það geti borið um 750 tonn af afurðum, eða um 600 tonn ef afurðunum er komið fyrir á brettum í frystilest.
Skip með mikla möguleika
"Það er ljóst að bolfiskkvóti okkar hefur verið skertur og jafnframt hafa aflaheimildir verið fluttar frá stærri skipunum til smábátaútgerðarinnar. Við þessum breyttu aðstæðum þurfum við að bregðast," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. "Reynsla okkar af útgerð Vilhelms Þorsteinssonar EA-11 er mjög góð og við teljum ástæðu til þess að leggja frekari áherslu á uppsjávarveiðina. Í því ljósi var tekin ákvörðun um að fara þá leið að selja Baldvin Þorsteinsson til Þýskalands og jafnframt að breyta Hannover í fjölveiðiskip, sem er sambærilegt við Vilhelm Þorsteinsson, en hefur þó til viðbótar möguleika á því að veiða og vinna rækju. Við munum færa bolfiskheimildir okkar á Baldvini Þorsteinssyni yfir á önnur skip félagsins og þannig erum við að nýta betur skipastól þess og laga hann að skertum aflaheimildum á undanförnum misserum. Við sjáum það meðal annars fyrir okkur að Samherji fari að nýta að hluta rækjukvóta sinn á Flæmska hattinum þannig að við tryggjum betur hráefnisöflun fyrir Strýtu, rækjuverksmiðju okkar á Akureyri," sagði Þorsteinn ennfremur.
Baldvin afhentur í febrúar
Baldvin Þorsteinsson mun fara í sína síðustu veiðiferð undir merkjum Samherja strax eftir áramót og eins og áður segir verður skipið afhent nýjum eiganda í febrúar. Hannover er hins vegar þessa dagana í sinni síðustu veiðiferð fyrir DFFU og mun verða afhent Samherja í næsta mánuði. Áhöfn Baldvins Þorsteinssonar verður sagt upp um áramótin og verður leitast við að bjóða henni störf á öðrum skipum félagsins.