Breytingar hjá Sæsilfri

Guðmundur Valur Stefánsson framkvæmdastjóri Sæsilfurs hefur látið af störfum að eigin ósk.  Guðmundur er einn af stofnendum Sæsilfurs og hefur verið framkvæmdastjóri þess frá upphafi.  Stjórn Sæsilfurs þakkar Guðmundi fyrir vel unnin störf á tímabilinu og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Stjórn Sæsilfurs hefur í stað Guðmundar Vals ráðið Simin Pauli Sivertsen.  Simin er  42 ára Færeyingur frá Klaksvik.  Hann starfaði áður hjá East Salmon í Færeyjum í 12 ár, þar af sem rekstrarstjóri síðustu sex ár.  East Salmon er eitt af þremur stærsu framleiðendum á laxi í Færeyjum.