Drekka saman morgunkaffi alla virka daga og gæða sér reglulega á signum fiski. „Algjört hnossgæti“

Öflugur hópur í hátíðarkvöldverði:  Frá vinstri: Kristinn Pálsson, Einar Ingi Einarsson, Brynjar Jac…
Öflugur hópur í hátíðarkvöldverði: Frá vinstri: Kristinn Pálsson, Einar Ingi Einarsson, Brynjar Jacobsen Guðmundsson, Oddur Óskarsson, Pétur Pálmason, Hörður Guðmundsson, Valmundur Pétur Árnason, Guðmundur Karlsson, Leifur Þormóðsson, Vilhjálmur Kristjánsson, Guðmundur Þ. Jónsson, Arngrímur Brynjólfsson.

Nokkrir fyrrum sjómenn á fiskiskipum Útgerðarfélags Akureyringa og Samherja hittast alla virka daga í morgunkaffi og ræða þar heimsins gagn og nauðsynjar. Reglulega eru svo haldnar heljarinnar matarveislur, þar sem siginn fiskur er á boðstólum.

Síðustu árin hefur þessi hópur komið saman kaffihúsi Bakarísins við Brúna á Akureyri. Sumir koma beint úr hressilegu morgunsundi, aðrir láta sér nægja að byrja daginn á kaffinu og taka stöðuna á helstu málefnum líðandi stundar.

Á sitt fasta sæti við borðið

Greinilegt er að allir þekkjast vel eftir öll þessi ár. Flestir eiga það sameiginlegt að hafa verið lengi á sjó og upplifað gríðarlegar breytingar í sjávarútvegi, frá síðutogurum til tæknivæddra fiskiskipa dagsins í dag.

Af öllum ólöstuðum er óhætt að fullyrða að Kristinn Pálsson fyrrverandi bátsmaður er driffjöðrin í hópnum og sá eini sem á fast sæti við borðið.

„ Upphafið má rekja til þess að við vorum tveir sem ákváðum að hittast reglulega á Litlu kaffistofunni, sem þá var og hét. Síðan þróaðist þetta bara svona, hópurinn stækkaði og við höfum verið hérna í Bakaríinu við Brúna frá því að Litlu kaffistofunni var lokað. Það er náttúrulega allur gangur á því hversu margir mæta. En þetta er traustur og þéttur kjarni sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa verið á skipum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa og komnir á eftirlaun. Svo eru hérna strákar sem hafa slegist í hópinn en tengjast ekki beint sjónum en hafa allir brennandi áhuga á sjávarútvegi. Félagsskapurinn lífgar upp á tilveruna og fjölbreytileikann og reglulega reka inn nefið góðir gestir, sem er virkilega ánægjulegt,“ segir Kristinn.

Skilja alltaf í fullu bróðerni

Það er aldrei skortur á umræðuefni og umræðurnar geta orðið ansi líflegar. Pólitíkin hefur eðlilega verið nokkuð áberandi umræðuefni í aðdraganda kosninganna. Flestir í hafa mikinn áhuga á enska fótboltanum og oftar en ekki eru leikir helgarinnar gerðir upp á mánudögum.

„Fljótlega eftir kjördag dregur sjálfsagt úr pólitíkinni en ávallt er skeggrætt um sjávarútveg, hvaða skip eru að gera það gott og svo framvegis. Hérna er ýmislegt látið flakka sem fer ekki út fyrir hússins dyr. Við skiljum alltaf í fullu bróðerni, sem er líklega lykillinn að því að þessi félagsskapur hefur lifað svona góðu lífi. Þorsteinn Már forstjóri kíkir af og til á okkur og þá er tækifærið notað til að fá svör við ýmsum spurningum sem brenna á okkur,“ segja þeir félagar.

Afmælisbarnið splæsir á hópinn.

Sú hefð hefur skapast að sá sem á afmæli greiðir fyrir morgunkaffið.

„ Þetta hefur lengi verið óskrifuð regla, afmælisbarnið splæsir í tilefni tímamóta. Og það þýðir ekkert að skrópa, þá bara borgar einhver í hópnum reikninginn og rukkar svo viðkomandi þegar hann mætir næst,“ útskýrir Kristinn.

Pílagrímaferð til Hull og Grimsby

Síðar í vetur fer hópur sjómanna í pílagrímsferð til útgerðarbæanna Hull og Grimsby á Englandi. Margir eiga minningar frá söluferðum togara þangað á árum áður og ekki stóð á nokkrum innihaldsríkum sögum þegar ferðin góða barst í tal. Baldvin Gíslason fiskinnflytjandi tekur á móti hópnum og Þorsteinn Vilhelmsson er með í undirbúningnum, ásamt fleiri góðum mönnum. 

„ Þetta verður mikið ævintýri. Ég er ekki frá því að búið sé að breyta börunum í virðuleg kaffihús en stelpurnar muna örugglega eftir okkur. Það er spurning hvort tattú stofurnar séu á sama stað,“ er meðal þess sem látið er flakka í hópnum.

Siginn fiskur

Nokkrum sinnum á ári býður Kristinn Pálsson hópnum til matarveislu á heimili sínu. Matseðillinn hefur verið óbreyttur frá fyrstu tíð, siginn fiskur.

„Með signa fiskinum er hamsatólg, rúgbrauð og annað nauðsynlegt meðlæti. Við höfum verið með þessi matarboð í mörg ár og mætingin er alltaf góð. Siginn fiskur er hátíðarmatur sem aldrei klikkar, ég tala nú ekki um að boða þetta hnossgæti í góðra vina hópi. Þess vegna tölum við gjarnan um hátíðarkvöldverð. Þessi kraftmikli hópur hefur gefið mér mikið og ég hlakka alltaf til næsta fundar,“ segir Kristinn Pálsson.