Hér er Eyðun á Bergi (í miðjunni) við verðlaunaafhendinguna
Fyrsti sjómannadagur Færeyinga var haldinn í Klaksvík um síðustu helgi. Keppt var í ýmsum greinum og bar Eyðun á Bergi skipstjóri á Akrabergi, sem Samherji á hlut í, sigur úr býtum í að bæta troll. Eyðun setti heimsmet er honum tókst að vinna verkið á 7 mínútum og 49 sekúndum og var hann 21 sekúndu á undan næsta manni Andor Isaksen.