Um fjörutíu nemendur af þremur námsleiðum við Háskólann á Akureyri hafa síðustu vikur verið í vettvangsferðum hjá Samherja. Námsleiðirnar eru sjávarútvegsfræði, viðskiptafræði með áherslu á sjávarútveg og meistaranám í stjórnun sjávarauðlinda. Hörður Sævaldsson lektor og deildarformaður Auðlindadeildar við Háskólann á Akureyri segir mikil þægindi að gera skotist í slíkar vettvangsferðir í næsta nágrenni við skólann. Sérlega fróðlegt hafi verið að rekja ferli hráefnis frá vel búnu fiskiskipi í gegnum hátækni fiskiðjuver.
Fjöldi sjávarútvegsfræðinga hjá Samherja
Samherji og Háskólinn á Akureyri hafa um langt árabil haft með sér samstarf. Námið í fyrrgreindum námsleiðum samanstendur af fyrirlestrum, vettvangsferðum í fyrirtæki og verklegum æfingum. Á þriðja tug sjávarútvegsfræðinga starfa hjá Samherja og tengdum félögum, lang flestir þeirra stunduðu námið við Háskólann á Akureyri.
Harðbakur og fiskvinnslurnar á Akureyri og Dalvík
Nemendurnir kynntu sér búnaðinn um borð í Harðbak EA, sem er um þriggja ára gamalt skip og afar vel búið á allan hátt. Leiðsögumaður um borð var Friðrik Karlsson vélfræðingur. Sunneva Ósk Guðmundsdóttir gæðastjóri og Magnús Finnsson sérfræðingur tóku á móti hópunum í fiskvinnslu Útgerðarfélags Akureyringa en bæði eru þau sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Jón Sæmundsson vinnslustjóri var leiðsögumaður nemendanna í fiskvinnslu Samherja á Dalvík en Jón sótti sömuleiðis sína menntun til Háskólans á Akureyri.
Að loknum vettvangsferðunum fóru nemendurnir á rannsóknarstofur Háskólans á Akureyri, þar sem gæði botnfisks voru metin og fiskurinn flakaður. Fleiri fyrirtæki voru heimsótt í þessum vettvangsferðum, svo sem Sæplast á Dalvík og Vélfag á Akureyri.
Hentugt að hafa hátækni vinnslur í næsta nágrenni
„Í verklegum æfingum er lögð áhersla á ná hámarks afurðanýtingu og verðmæti úr hverjum fiski líkt og gert er í nútíma fiskiðjuverum, þó án véla- og sjálfvirknibúnaðar. Gamla handverkið er enn mikilvægt, þau sem stýra framleiðslunni þurfa að þekkja hvernig vélbúnaður hlutar fiskinn niður til að geta stýrt framleiðslunni með hámörkun verðmæta að leiðarljósi. Samstarf Háskólans á Akureyri og Samherja hefur verið mjög gott í gegnum tíðina. Fyrir okkur er það afar hentugt að hafa hátækni vinnslur svo að segja við hliðina á skólanum,“ segir Hörður Sævaldsson.