Fiskvinnsluhús Samherja: „Hátækni á heimsmælikvarða“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir / myndir samherji.is
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir / myndir samherji.is

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarmála kynnti sér starfsemi vinnsluhúss Samherja á Dalvík. Ráherrann flutti skrifstofu sína til Dalvíkur í einn dag og kynnti sér einnig starfsemi fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu. Slétt fjögur ár eru liðin frá ‏því vinnsla hófst í húsinu, sem er eitt fullkomnasta vinnsluhús heimsins í bolfiskvinnslu. Íslenskur hugbúnaður er áberandi í húsinu og flestar vélar eru framleiddar af innlendum fyrirtækjum í samvinnu við starfsfólk Samherja.

Við hönnun hússins var horft sérstaklega til þess að gera allan aðbúnað starfsfólks eins og best verður á kosið.

Vinnsluhúsið hefur hlotið verðskuldaða athygli erlendra fyrirtækja, sem hafa sent hingað fulltrúa sína til að skoða þessa fullkomnu vinnslu.

Áslaug Arna segir að afar ánægjulegt hafi verið að sjá hversu fullkomnar íslenskar tæknilausnir eru.

Sjávarútvegurinn er aflvaki framfara

„Tæknin í húsinu er gríðarlega fjölbreytt og augljóst er að íslenskur sjávarútvegur stendur vel að vígi þegar horft er til nýsköpunar og tækniþróunar, sem er lykilatriði í atvinnugrein sem keppir á alþjóðlegum og kröfuhörðum mörkuðum. Hér er hátækni á heimsmælikvarða. Á undanförnum árum hafa litið dagsins ljós fjölmörg sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem byggja starfsemi sína að mestu á útflutningi eftir að hafa unnið náið með íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að þróun afurðanna, meðal annars Samherja. Sjávarútvegurinn er með öðrum orðum á margan hátt aflvaki framfara í íslensku hagkerfi og vinnsluhúsið á Dalvík er skýrt dæmi um það.“

Sjávarútvegurinn spennandi alþjóðleg atvinnugrein

Áslaug Arna fer sömuleiðis með málefni háskóla landsins. Hún segir að aukin tækni kalli á sérmenntað starfsfólk.

„Já, klárlega. Háskólinn á Akureyri hefur um langt árabil átt samstarf við sjávarútveginn, eins og Samherja en skólinn útskrifar meðal annars sjávarútvegsfræðinga og margir þeirra starfa hjá Samherja. Íslenskur sjávarútvegur er spennandi alþjóðleg atvinnugrein og vinnslan hér á Dalvík sýnir glöggt framsæknina og af hverju við erum fremst meðal þjóða í samkeppnishæfni atvinnugreinarinnar,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.