Í tímaritsviðtali sem birtist í gær er haft eftir Þorsteini Vilhelmssyni fyrrum útgerðastjóra og eins aðaleiganda Samherja hf. að fréttatilkynning sem gefin var út af félaginu 9. júní 1999 í tilefni af starfslokum hans hafi ekki verið sannleikanum samkvæm.
Verðbréfaþing Íslands hefur í dag kannað þetta mál og leitað skýringa hjá Samherja hf. Það er niðurstaða þingsins að málið gefi ekki tilefni til viðbragða af þess hálfu og að fréttatilkynning Samherja frá 9. júní 1999 hafi verið í samræmi við reglur þingsins um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa.
Fréttin er af vef Verðbréfaþings Íslands www.vi.is