Háberg GK 299 lagðist að bryggju í Grindavík í morgun með 1.150 tonn af loðnu og er það fyrsta loðnan sem landað er í Grindavík á þessu ári.
Loðnan er stór og góð og fer öll í bræðslu...
Háberg GK 299 lagðist að bryggju í Grindavík í morgun með 1.150 tonn
a
f loðnu og er það fyrsta loðnan sem landað er í Grindavík á þessu ári.
Loðnan
er stór og góð og fer öll í bræðslu.
Að sögn
Óskars Ævarssonar rekstrarstjóra Samherja í Grindavík er þetta mikið
fagnaðarefni eftir einmuna l
élegt ár og segir
Grindvíkinga vonandi sjá fram á betri tíð.
Hljóðið var gott í Þorsteini Símonarsyni skipstjóra Hábergsins og sagði hann loðnuna hafa veiðst
flottroll
á
Seyðisfjarðardýpi
og einungis þurft fjögur hol. Hann sagðist hafa verið
34 tíma að sigla til Grindavíkur frá
miðunum. "Við eigum von á að loðnan gangi suður fyrir land og styttist þá
tíminn sem fer í heimstímið", sagði Þorsteinn. Hábergið heldur aftur til veiða um leið og lokið hefur verið við löndun.
Samherji hf. hefur tekið Seley ÞH á leigu og kemur hún aðallega til með að flytja afla frá veiðiskipum í land og einnig að flytja hráefni til bræðslu frá vinnsluskipunum. Seleyjan er í eigu Vísis hf. í Grindavík og ber tæplega 1000 tonn.