„Góð tilfinning að sigla inn Norðfjörðinn með fyrsta farminn”

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á siglingu inn Norðfjörð í blíðskaparveðri/ myndir: Hákon Ernuson
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á siglingu inn Norðfjörð í blíðskaparveðri/ myndir: Hákon Ernuson

Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, kom til Neskaupstaðar í morgun með rúmlega 850 tonn af makríl, sem er fyrsti farmur skipsins á n‎ýhafinni makrílvertíð.

Aflinn var veiddur í Síldarsmugunni svokölluðu. Undanfarin ár hafa uppsjávarskip Samherja og Síldarvinnslunnar haft með sér samstarf um veiðar, sem skilað hefur góðum árangri. Börkur NK og Vilhelm Þorsteinsson voru að veiðum í Síldarsmugunni.

34 klukkustunda sigling til Neskaupstaðar

Birkir Hreinsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni segir um að ræða ágætis hréefni.

„Makríllinn er viðkvæmastur á þessum árstíma og fitnar eftir því sem líður á vertíðina. Stærðin er um og yfir 400 grömm, sem hentar ágætlega til manneldis. Siglingin úr Síldarsmugunni tók 34 klukkustundir, enda siglingaleiðin um 400 sjómílur og þá skiptir miklu máli að kælibúnaðurinn sé góður.“

Finna fiskinn með trollinu

Birkir segir að fiskileitarbúnaðurinn sýni mjög takmarkaðar upplýsingar um hvar makríl sé að finna í veiðanlegu magni.

„Makríllinn er á grunnu vatni, sem við köllum yfirborðsveiði. Við erum að tala um frá yfirborði niður á um eitt hundrað metra, sem þýðir að erfitt er að sjá fiskinn í tækjunum. Helst er þá að finna hann með trollinu, sem var raunin í þessum túr.“

Þokkalega bjartsýnn á framhaldið

Birkir segir að löndun lokinni verði væntanlega haldið á makrílveiðar í íslenskri lögsögu suð-austur af landinu. Þangað sé um eitt hundrað sjómílna sigling.

„Já, já, það var góð tilfinning að sigla inn Norðfjörðinn í morgun í blíðskaparveðri. Þegar vertíð er að hefjast er alltaf viss spenna. Ég er þokkalega bjartsýnn á framhaldið, áhöfnin er þaulvön og skipið er vel útbúið á allan hátt,” segir Birkir Hreinsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11.