„Fast þeir sóttu sjóinn,“ segir í þekktu dægurlagi og víst er að áhöfn Harðbaks EA, ísfisksskips Útgerðarfélags Akureyringa, gerir það.
Harðbakur landaði fullfermi á Dalvík snemma í morgun, um 90 tonnum af slægðum fiski, aðallega þorski. Skipstjórinn segir að það hafi verið dásamleg tilfinning að sigla inn Eyjafjörðinn í veðurblíðunni með góðan afla.
3000 tonn á 100 sólarhringum
Þegar afli Harðbaks er tekinn saman frá 15. febrúar til dagsins í dag sést vel að fast er róið. Á rúmlega eitt hundrað sólarhringum hefur 37 sinnum verið landað og aflinn er samtals 3.018 tonn. Að jafnaði hefur því verið landað um 80 tonnum eftir hverja veiðiferð.
Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri segir að þessi túr hafi tekið tvo og hálfan sólarhring, rétt um sólarhring hafi tekið að fylla skipið.
Hráefninu ekið norður
„Við vorum fyrir norðan Hornstrandir og þetta er mjög góður fiskur, rúmlega fjögur kíló og við vorum að taka sjö til átta tonn í holi. Við erum ellefu um borð, allt saman stálkarlar. Harðbakur hefur aðallega landað Í Þorlákshöfn, Hafnarfirði, Grundarfirði og í Bolungarvík, frá þessum stöðum er hráefninu svo ekið norður til Dalvíkur og Akureyrar. Í raun og veru er oftast landað næst þeim stað sem við erum við veiðar, sem skýrir fjölda veiðiferðanna að nokkru. “
Indæl tilfinning að sigla inn Eyjafjörðinn með fullfermi
Harðbakur kom nýr til Akureyrar seint á síðasta ári en skipið var smíðað í Noregi. Guðmundur segir skipið gott í alla staði, bæði hvað varðar vinnslubúnað og aðbúnað áhafnarinnar.
„Það eru tvær áhafnir á skipinu, Covid hefur haft töluverð áhrif á frítúra en núna fer þetta allt saman að komast í rétt horf hjá okkur. Jú, jú, það var sannarlega indæl tilfinning að sigla inn Eyjafjörðinn í nótt með fullfermi af góðum fiski og ekki skemmir fyrir að hafa rofið 3.000 tonna múrinn í leiðinni,“ segir Guðmundur skipstjóri.