„Hressandi að vakna snemma og launin eru góð“

Frá vinstri: Andri Rúnar Hákonarson, Emilía Björk Óladóttir, Sunneva María Vilhelmsdóttir, Lárus Vin…
Frá vinstri: Andri Rúnar Hákonarson, Emilía Björk Óladóttir, Sunneva María Vilhelmsdóttir, Lárus Vinit Víðisson. myndir/samherji.is

Um fjörutíu ungmenni eru ráðin til starfa í vinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri í sumar til að leysa af fastráðið starfsfólk vegna sumarleyfa.

Starfsmenn vinnsluhússins eru að jafnaði um eitt hundrað og tuttugu, þannig að hlutfall sumarstarfsfólks er nokkuð hátt þessar vikurnar.

Mikilvægt starfsfólk

Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri segir að vel hafi gengið með ráðningar.

„Það er alltaf töluverð ásókn í sumarstörfin og því miður ekki hægt að verða við öllum umsóknum. Flest sem sækja um vinnu hafa kynnt sér starfsemina og vita ágætlega að hverju þau ganga. Áður en þessir nýju starfsmenn hefja störf er efnt til nýliðafræðslu, þar sem farið er yfir helstu þætti starfseminnar og spurningum svarað. Án sumarafleysingafólksins væri líklega ekki hægt að halda úti fullri starfsemi svo þessir Sunneva María Vilhelmsdóttirstarfsmenn eru mikilvægir. Þetta er upp til hópa hörku duglegt fólk, auk þess sem launin hérna eru líklega talsvert hærri en gengur og gerist hjá ungu fólki.“

Vantaði sumarvinnu

Sunneva María Vilhelmsdóttir er sextán ára og hefur ekki starfað áður í fiskvinnslu.

„Mig vantaði sumarvinnu, mamma sótti um fyrir mig og ég var ráðin. Stundum er ég í pökkun, aðra daga vinn ég við að skera fisk og svo hef ég líka verið á lausfrystinum, þannig að þetta er bara fjölbreytt. Vinnan hefst oftast klukkan átta á morgnana og flesta daga er unnið til klukkan fjögur.“

Er þetta erfið vinna ?

„Nei ekki svo, það finnst mér ekki. Svo þekki ég marga sem eru að vinna hérna, miklu fleiri en ég bjóst við, segir Sunneva María.“

Margt að læra

Emilía Björk Óladóttir er á átjánda aldursári og hún hefur líkt og Sunneva María aldrei áður unnið í fiski.

„Þetta er bara mjög fínt, ég hef undanfarna daga verið í flugfiskinum og það er margt að læra fyrstu vikurnar. Mér líst bara mjög vel á þetta allt saman.“

Hvernig er að mæta til vinnu snemma á morgnana ?

„Það er bara hressandi að vakna snemma, ég fer bara fyrr að sofa og þá er þetta í fínu lagi.“

Mötuneytið, hvernig er það ?

„Mjög fínt, finnst mér. Góður matur.“

Hvað með launin, eru þau góð ?

Andri Rúnar Hákonarson„Ég veit ekki nákvæmlega hver launin eru en ég veit að þau eru góð miðað við annað sem er í boði. Þetta kemur allt í ljós við fyrstu útborgun,“ segir Emilía Björk.

Góð laun og fínt mötuneyti

Andri Rúnar Hákonarson er sautján ára og hann starfaði í vinnsluhúsi ÚA síðasta sumar.

„Ég er aðallega í að slægja fisk og mæti stundum á undan flestum til að undirbúa vinnsluna.“

Er þetta erfið vinna ?

„Nei, það finnst mér ekki en stundum getur hún verið svolítið erfið og það er bara í fínu lagi.“

Ferðu þreyttur heim ?

„Já, já, það kemur fyrir en þá er bara að passa sig á að fá nægan svefn.“

Launin, hvernig eru þau ?

„Þau eru góð. Hérna er líka fínt mötuneyti og það skiptir miklu máli,“ segir Andri Rúnar.

Lárus Vinit VíðissonNýliðum vel tekið

Lárus Vinit Víðisson er á sautjánda aldursári. Hann vann í fyrrasumar í ÚA, líkt og Andri Rúnar.

„Mér fannst fínt að vera hérna í fyrra og sótti því aftur um vinnu í sumar og var ráðinn. Ég er mjög ánægður með þetta allt saman.“

Þekkirðu marga hérna ?

„Já, helling og svo kynnist maður líka mörgum, sem er fínt.“

Hvernig er ykkur nýliðunum tekið ?

„Bara vel, eldri starfsmenn kenna okkur margt. Störfin eru margvísleg, þannig að það er auðvitað ýmislegt læra, sérstaklega í fyrra. Núna er þetta léttara, maður veit hvernig flest virkar,“ segir Lárus Vinit Víðisson.