Hver fékk launahækkunina 2009-10?


Á árinu 2010 greiddi Samherji hf. 5.300 milljónir króna í laun og launatengd gjöld. Hækkun á milli ára nam samtals 1.200 milljónum króna. Af þessari hækkun fengu starfsmenn Samherja hf. 450 milljónir í sinn hlut en ríkið, lífeyrissjóðir og stéttarfélög 750 milljónir.

Þar af leiðir að 37% af hækkun launa og launatengdra gjalda runnu til starfsmanna en 63% runnu til ríkisins, lífeyrissjóða og stéttarfélaga.

launahaekkun_skipting