Loðnuvertíð í fullum gangi í Grindavík

„Nú er þetta komið í fullan gang og bjart framundan," sagði Óskar Ævarsson, rekstrarstjóri Samherja í Grindavík, þegar haft var samband við hann seinnipartinn í gær. Þá var verið að landa 2.050 tonnum af ágætis loðnu úr Þorsteini EA og Ammasat og Oddeyrin EA á leið til hafnar. Að lokinni löndun úr þeim verður búið að taka á móti 27.000 tonnum af loðnu í Grindavík á vertíðinni.Sem kunnugt er hefur loðnuveiðin gengið upp og ofan það sem af er. Ótíð hefur gert skipum sem veiða í nót erfitt fyrir en betur hefur gengið hjá þeim sem veiða í troll. Nú virðist hins vegar vera að rætast úr og loðnan sem Þorsteinn kom með að landi fékkst einmitt í nót. Óskar segir bræðsluna hafa gengið ágætlega og nægt hráefni hafi borist að landi síðasta hálfan mánuðinn eða svo. Til þessa hefur allur aflinn farið í bræðslu en það gæti breyst. „Við vorum að skoða loðnuna sem Þorsteinn kom með og hrognafyllingin er orðin nógu góð. Hins vegar er enn bullandi áta og einnig er siglingin af miðunum enn heldur löng fyrir okkur hér í Grindavík til þess að við getum tekið loðnuna í vinnslu. Að vísu eru komnar svo fínar lestar í þessi stærri skip sem fara mun betur með hráefnið en áður var þannig loðnan þolir lengri siglingu," segir Óskar.
Að óbreyttu segir hann vertíðina muni standa út mars. „Auðvitað er aldrei hægt að fullyrða neitt um hvernig þetta kemur til með að þróast en ég er bjartsýnn á góða vertíð þegar upp verður staðið," segir Óskar Ævarsson að lokum.