Finnbogi Reynisson (í miðju) með fulltrúum Marels við undirskrift samningsins
Hugbúnaðurinn Innova frá Marel verður innleiddur við framleiðslustýringu og vinnslueftirlit hjá öllum landvinnslueiningum Samherja og völdum
skipum fyrirtækisins. Fulltrúar fyrirtækjanna undirrituðu samning þess efnis í síðustu viku.
Samningurinn er mikilvægur áfangi fyrir Samherja sem hefur í stefnu sinni að nýta sér ávallt nýjustu tækni sem völ
er á hverju sinni í starfseminni, bæði á sjó og í landi, á Íslandi og erlendis. Umfang fyrirtækisins er mikið og
því mikilvægt að hafa sem besta yfirsýn og eftirlit með framleiðslunni. Innova hugbúnaðurinn mun sjá stjórnendum fyrir öllum
þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um framleiðsluna, allt frá því að tekið er
við hráefninu þar til fullunnin vara er send úr húsi.
Finnbogi Reynisson, yfirmaður upplýsingatæknimála hjá Samherja:
„Við höfum mjög góða reynslu af samstarfi við Marel þegar kemur að hugbúnaði fyrir okkar vinnslur. Marel þekkir þarfir
sjávarútvegsins og það endurspeglast í virkni og notagildi hugbúnaðarins. Okkar markmið er að hafa traustan hugbúnað sem er í
stöðugri þróun og fylgir okkur inn í framtíðina. Við teljum Marel uppfylla þær kröfur og því veljum við
Innova.“
Hafist verður handa við að innleiða hugbúnaðinn strax í maí á þessu ári.