Samherji hf. boðaði til móttöku síðdegis í dag í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var viðstaddur afhendinguna og flutti ræðu. Hann er einnig verndari sérstaks rannsóknaverkefnis sem tengist neðansjávarstrýtunum á botni Eyjafjarðar en það verkefni var kynnt í móttökunni og hlaut styrk frá Samherja. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta er fjórða árið í röð sem Samherji afhendir slíka styrki.
Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, færði forseta Íslands sérstakar þakkir í setningarávarpi sínu. “Ég vil þakka þér fyrir að koma til þessa hófs okkar ásamt eiginkonu þinni. Með því sýnið þið okkur mikla virðingu – þið sýnið undistöðuatvinnugrein þjóðarinnar mikla virðingu og og ennfremur starfsfólki fyrirtækjanna tveggja, Samherja og ÚA.”
Liðsheildin er lykillinn að góðum árangri Samherja
“Úrræðagott starfsfólk hefur á þessu ári tekist á við krefjandi verkefni og leyst úr þeim með dugnaði og samviskusemi á farsælan átt. Ég hef sagt það áður að mitt lán liggur í því að hafa að baki mér þennan þétta og trausta hóp en það er liðsheildin sem er lykillinn að góðum árangri Samherja – ekki bara á þessu ári, heldur einnig á undangengum árum eða allt frá því að félagið var stofnað,” sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, m.a. í ræðu sinni.
Hann sagði að Samherji hafi frá upphafi verið hluti þessa samfélags og því fylgi mikil ábyrgð. “Það er stefna okkar að láta starfsmenn félagsins og samfélagið í kringum okkur njóta þess þegar vel gengur. Liður í því var að greiða sérhverjum starfsmanni í landi 360 þúsund krónur í launauppbót á árinu, umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningum. Annar liður í þeirri stefnu okkar er að úthluta þessum styrkjum hér í dag,” sagði hann..
Ómetanlegur þáttur í forvörnum og uppeldi
Þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur þáttur í forvörnum og uppeldi. Samherji vill efla þjálfun og annað starf félaganna og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til. Fjármununum skal varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppnisferðir þeirra veturinn 2011-2012 í þeim íþróttagreinum sem félögin hafa innan vébanda sinna. Til að tryggja að þessir fjármunir fari í að efla barna- og unglingastarf og vinna með íþróttafélögunum að útfærslunni er starfandi þriggja manna hópur. Hann skipa þau Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Árni Óðinsson og Jóhannes Bjarnason.
“Styrkirnir eru jafnframt, og ekki síður, viðurkenning til þess stóra hóps fólks – foreldra og forsvarsmanna íþróttafélaga – sem vinna óeigingjarnt starf í ómældu magni í þágu félags síns, án þess að fá svo mikið sem krónu greitt fyrir starf sitt. Launin sem þessir sjálfboðaliðar fá eru að sjá starfið blómstra, að sjá unga fólkið blómstra í íþrótt sinni,” sagði Helga Steinunn Guðmundsdóttir m.a. í ræðu sinni.
Að auki hlutu ýmis íþrótta- og æskulýðsfélög styrki auk endurhæfingardeildarinnar í Kristnesi, HL-stöðvarinnar á Akureyri og Framfarafélagsins Stíganda til áframhaldandi uppbyggingar á útivistarsvæði Akureyringa í Kjarnaskógi. Ennfremur hlaut rannsóknaverkefni tengt neðansjávarstrýtunum á botni Eyjafjarðar sérstakan styrk og undirritaður var samningur um aðkomu Samherja að því verkefni, sem fyrr segir.
Upphæð styrkjanna sem afhentir voru í KA-heimilinu í dag nemur 75 milljónum króna.
Styrkþegar
Styrkir sem afhentir voru að þessu sinni skiptast sem hér segir:
Barna- og unglingastarf Knattspyrnufélags Akureyrar: 12 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Íþróttafélagsins Þórs: 12 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Fimleikafélags Akureyrar: 5,0 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Skíðafélags Akureyrar: 3,0 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Skautafélags Akureyrar: 2,5 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Sundfélagsins Óðins: 2,0 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Íþróttafélagsins Eikar: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Íþróttafélagsins Akurs: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Ungmennafélags Akureyrar: 1,0 milljón króna.
Barna- og unglingastarf Siglingaklúbbsins Nökkva: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Golfklúbbs Akureyrar: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Hestamannafélagsins Léttis: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Tennis- og badmintonfélags Akureyrar: 300.000 krónur.
Barna- og unglingastarf KKA - Akstursíþróttafélags: 500.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Karatefélags Akureyrar: 300.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Ungmennafélags Svarfdæla: 2,5 milljónir króna.
Barna- og unglingastarf Skíðafélags Dalvíkur: 1,0 milljón króna.
Ungmennafélag Svarfdæla, meistaraflokkur-knattspyrna: 600.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Skíðafélags Dalvíkur: 1,0 milljón króna
Barna- og unglingastarf Golfklúbbsins Hamars: 500.000 krónur.
Barna- og unglingastarf Leikfélags Dalvíkur: 300.000 krónur.
Knattspyrnufélag Akureyrar, mfl. karla, knattspyrna: 2,0 milljónir króna.
Íþróttafélagið Þór, mfl. karla, knattspyrna: 2,0 milljónir króna.
Knattspyrnufélag Akureyrar, mfl. karla og kvenna, blak: 700.000 krónur
Íþróttafélagið Þór, mfl. karla og kvenna, körfuknattleikur: 700.000 krónur.
Skautafélag Akureyrar, mfl. karla og kvenna, íshokkí: 700.000 krónur
Þór/KA, mfl. kvenna, knattspyrna: 2,0 milljónir króna.
KA/Þór, mfl. kvenna, handknattleikur: 750.000 krónur.
Akureyri - handboltafélag: 5,0 milljónir króna.
Æskulýðsstarf Akureyrarkirkju: 1,0 milljón króna.
Æskulýðsstarf Glerárkirkju: 1,0 milljón króna.
Sumarbúðir KFUM & KFUK að Hólavatni: 500.000 krónur.
Skátafélagið Klakkur: 600.000 krónur.
Fjölsmiðjan, Akureyri: 600.000 krónur.
Endurhæfingardeildin í Kristnesi, til tækjakaupa: 2,5 milljónir króna.
HL-stöðin: 1,0 milljón krónur.
Bryndís Rún Hansen, sundkona: 500.000 krónur.
Framfarafélagið Stígandi, til uppbyggingar útivistasvæðis Akureyringa í Kjarnaskógi: 500.000 krónur.
Neðansjávarstrýtur í Eyjafirði: 3,0 milljónir króna.
Önnur verkefni: 3,450 þúsund króna.
Samtals: 75 milljónir króna