Samherji veitir 80 milljónir í styrki til samfélagsins

Samherji_styrkveiting_des_2013Samherji afhenti rúmlega 80 milljónir króna í ýmsa styrki til íþrótta- og æskulýðsstarfs og annarra samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu í hófi sem haldið var í KA-heimilinu laugardaginn 21.desember. Þetta er í sjötta skipti sem styrkir eru veittir úr Samherjasjóðnum. „Samherji vill efla starf íþrótta- og æskulýðsfélaga enn frekar með því að veita þeim styrki," sagði Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður Samherjasjóðsins. Drjúgur hluti styrkjanna rennur til barna- og unglingastarfs og skal þeim fjármunum varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppnisferðir þeirra á yfirstandandi ári eða styrkja starfið með öðrum hætti. Hluti styrkja Samherja rennur til meistaraflokka íþróttafélaga á svæðinu.

Samherji_styrkveiting_HSGÍþróttir mikilvægur þáttur

„Ég vil ítreka það sem margoft hefur verið sagt að þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur þáttur í forvörnum og uppeldi.

Þessi þáttur er mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr því ofþyngd og offita eru vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi. Sérfræðingar segja að ofþyngd og sjúkdómar sem af henni leiða sé stærsta heilbrigðisvandamál nútímans. Það er því brýnna en nokkru sinni fyrr að hvetja til og stuðla að aukinni hreyfingu barna okkar og ungmenna.“

Helga Steinunn nefndi að auki þrennt: Samherji varð fyrr á árinu einn aðal styrktaraðili Special Olympics á Íslandi fram yfir alþjóðaleika samtakanna árið 2015 og nemur styrkurinn fimm milljónum króna á ári í þrjú ár; endurhæfingadeild Sjúkrahússins á Akureyri í Kristnesi fær nú þrjár milljónir til kaupa á tækjum og búnaði og loks tilkynnti hún um 500.000 kr styrk til Jóhanns Þórs Hólmgrímssonar, sem er 19 ára gamall hreyfihamlaður Akureyringur. Hann stundar skíðaíþróttina af kappi og verður meðal keppenda á vetrarólympíumóti fatlaðra í Sochi í Rússlandi í febrúar á næsta ári.

Heimsmet

Tveir dagar hafa fallið úr vinnslu hjá Samherja frá 30. janúar á þessu ári þar til í gær, fyrir utan saumarleyfi, að sögn Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra fyrirtækisins.

Samherji_styrkveiting_TMB

Ég er þakklátur fyrir árið sem er að líða. Við vitum öll að hafið er síbreytilegt. Það er blítt eina stundina en getur verið ógnvænlegt þá næstu. Ég hef stundum hælt mér af því að hafa á góðri liðsheild að skipa. Á þessu ári náðum við þeim einstæða árangri að okkur tókst að halda uppi vinnslu frá 30. janúar og til dagsins í dag ef undan eru skilin sumarleyfi. Samtals á árinu féllu niður tveir dagar úr vinnslu. Þetta næst ekki nema með frábærri samvinnu allra starfsmanna sjómanna, landsvinnslufólks og sölufólks. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta hefur engum tekist, þá er ég ekki bara að tala um Ísland heldur allstaðar annarsstaðar. Þetta er því ekki bara Íslandsmet heldur einnig heimsmet,“ sagði Þorsteinn Már í hófi Samherja í KA-heimilinu í gær.

Í mörg horn að líta

Þorsteinn Már tók lítið dæmi um hvað það þýðir að taka þátt í alþjóðlegum sjávarútvegi. „Menn eru á vaktinni alla daga, allan ársins hring, á ólíklegustu tímum sólarhringsins, til sjós og lands. Og við fylgjumst með ólíklegustu hlutum. Í Asíu eru menn að fara á fætur þegar við í Evrópu erum að fara að sofa og Bandaríkin eru á allt öðrum tíma. Markaðir okkar eru úti um allan heim.

Núna á fimmtudagsmorguninn áttum við að afhenda fisk í Boulogne í Frakklandi klukkan 9 að morgni. Sá fiskur fór með bíl frá Aberdeen í Skotlandi um Ermarsundsgöngin til Frakklands. Vegna umferðartafa þar komst fiskurinn ekki til skila fyrr en kl. 15 þann dag. En allan morguninn var starfsmaður markaðsdeildar Samherja að fylgjast með umferðinni í Ermarsundsgöngunum! Það má því með sanni segja að í mörg horn sé að líta“

Styrkur til VMA til eflingar verknáms

Kristján Vilhelmsson tók einnig til máls og tilkynnti um styrkveitingu til Málm- og véltæknisviðs Verkmenntaskólans á Akureyri til kaupa á kennslutækjum.

"Góð og öflug verk og tæknimenntun er hverju samfélagi mikilvæg og sennilega aldrei eins og í dag. Við eigum því láni að fagna að á Akureyri starfar einn öflugasti verkmenntaskóli landsins, Verkmenntaskólinn á Akureyri en skólinn fagnar 30 ára afmæli sínu á næsta ári.

Í tilefni þeirra tímamóta að Samherji varð 30 ára á árinu, Kælismiðjan Frost verður 20 ára nú um áramótin og á síðasta ári voru liðinn 60 ár frá stofnun Slippstöðvarinnar, sem er fyrirrennari Slippsins veitir Samherji 10 milljóna króna styrk og Kælismiðjan Frost og Slippurinn 5 milljóna styrk hvort. Samtals nemur styrkurinn því 20 milljónum króna", sagði Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja.

 
Samherji_styrkveiting_VMA
Fulltrúar Verkmenntaskólans á Akureyri, Slippsins, Kælismiðjunnar Frost
ásamt Kristjáni Vilhelmssyni.