Samherji greiðir starfsfólki í landi 260 þúsund króna launauppbót

Samherji hf. hefur ákveðið að greiða starfsmönnum í landi 260 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 46 þúsund króna desemberuppbót. Þetta er í annað skiptið á árinu sem Samherji greiðir uppbót á laun. Starfsmaður í fullu starfi fær því samtals 320 þúsund króna aukagreiðslur á árinu. Þetta er jafnframt annað árið í röð sem Samherji greiðir um 300 starfsmönnum eingreiðslur umfram kjarasamninga.


”Það er okkur ánægjuefni að vera í þeirri stöðu þrátt fyrir allt að geta umbunað starfsfólki okkar með þessum hætti nú, ” segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. ”Þegar við lítum yfir árið erum við ánægð með hvernig til hefur tekist á flestum sviðum. Okkur hefur gengið vel í markaðsstarfi, verð hefur hækkað á mörgum mörkuðum, birgðir eru í jafnvægi og bæði framleiðslan og fiskeldið hafa gengið vel, ”segir hann. 

Þorsteinn Már segir að þótt á ýmsu gangi á Íslandi, hafi starfsfólki Samherja tekist að halda einbeitingunni, slá hvert framleiðslumetið á fætur öðru og sýna viðskiptavinum fyrir hvað Samherji stendur. ”Við seljum virðisaukandi þjónustu til viðskiptavina sem gera miklar kröfur og vilja hámarksgæði með langtíma sjónarmið að leiðarljósi. Í rekstri Samherja fara langtíma hagsmunir starfsfólks og fyrirtækisins saman,” segir hann.

”Áhyggjuefni mitt er stefna núverandi stjórnvalda í sjávarútvegsmálum, sem ef fram gengur, mun hafa neikvæð áhrif á fyrirtækið og þar með starfsfólkið. Hættan á því að við missum okkar verðmætustu viðskiptavini til samkeppnisaðila í Noregi er raunveruleg. Viðskiptavinir okkar vita eins og við að stefna norskra stjórnvalda í sjávarútvegsmálum er stöðugleiki,” segir Þorsteinn Már ennfremur.

Starfsmenn Samherja í landi, sem unnið hafa í fullu starfi í 12 mánuði eða lengur, fá 260 þúsund króna launauppbót. Þeir sem starfað hafa í 6-12 mánuði fá helming þeirrar upphæðar. Uppbótin verður greidd 15. desember nk.