Samherji hf. kaupir Engey RE 1

Engey RE 1. mbl.is/Eyþór
Engey RE 1. mbl.is/Eyþór
Samherji hf. hefur í dag keypt, fyrir hönd erlends dótturfélags, Engey RE 1 og verður skipið afhent í Fuglafirði fimmtudaginn 22.mars nk.
Skipið verður í framtíðinni gert út erlendis og er liður í að styrkja erlenda starfsemi Samherja hf.

 

Eftirfarandi tilkynning var send frá HB Granda á Kauphöllina í morgun:

20.3.2007

HB Grandi hf. selur Engey RE 1 til Samherja hf.

HB Grandi hf. hefur samið við Samherja hf. um sölu á Engey RE 1. Skipið verður afhent 22. mars 2007. Söluverð skipsins er 31,4 milljónir evra og bókfærður hagnaður af sölunni í kringum 700 milljónir króna.

Af þessum sökum er fallið frá áður tilkynntum áætlunum um að selja Engey til dótturfélags HB Granda, Atlantic Pelagic, og gera hana út við strendur Afríku.