Samherji hf. kaupir frystitogarann Akraberg

Samherji hf. hefur gengið frá kaupum á frystitogaranum Akrabergi frá Framherja Spf. í Færeyjum, en Samherji á þriðjungs hlut í því félagi. Í kaupsamningi um skipið er ákvæði um skilarétt innan 3ja mánaða frá undirritun. Hið nýja skip fær einkennisstafina GK-210. Í áhöfn skipsins eru 28 menn og skipstjóri er Eydunn á Bergi, sem verið hefur skipstjóri skipsins um árabil. Skipið hélt í dag á úthafskarfaveiðar. 

Að sögn Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja hf. er tilgangur kaupanna að nýta úthafskarfaheimildir, sem Samherja og íslendingum hefur verið úthlutað, utan lögsögu Íslands.

Fréttatilkynning frá Samherja hf., miðvikudaginn 27.ágúst 2003