Samherji kaupir hlutabréf í Síldarvinnslunni

Samherji hefur keypt 11,87% hlut í Síldarvinnslunni hf. Samherji hf. á ennfremur 50% eignarhlut í Snæfugli ehf. sem á 20% hlut í Síldarvinnslunni.Samherji og Síldarvinnslan hafa á undanförnum árum átt gott samstarf og nægir að nefna sameiginlegt sölufyrirtæki Sæblikann svo og samstarf á svið laxeldis. Líklegt má telja að það samstarf eigi eftir að aukast á komandi misserum í kjölfar þessara hlutabréfaviðskipta.