Samherji selur eignarhlut sinn í Kaldbak hf.

Fréttatilkynning frá Samherja hf.:

Gengið hefur verið frá samningum um sölu á 25% eignarhlut Samherja hf. í Kaldbak hf. og mun félagið fá sem endurgjald hlutabréf í Burðarás hf. að nafnvirði kr. 279.737.963. Samningur þessi er gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Burðarás hf.

Gera má ráð fyrir að hagnaður Samherja vegna viðskiptanna verði ríflega einn milljarður króna.