Samherji hf. hefur gert samkomulag sem stjórn félagsins hefur staðfest um að kaupa hlutafé að nafnverði 227.000.000.- á genginu 3,5 í Kaldbaki fjárfestingarfélagi hf. Eftir kaupin verður eignarhlutur Samherja í Kaldbaki fjárfestingarfélgi hf. 16,6%. Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. mun í framhaldinu kaupa eigin hlutabréf og eftir þau kaup verður eignarhlutur Samherja hf. 18,4% af virku hlutafé.