Skip Útgerðarfélags Akureyringa fá ný nöfn

Kaldbakur EA 1. mynd:Þorgeir Baldursson
Kaldbakur EA 1. mynd:Þorgeir Baldursson

Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveim togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á Akureyri.  Skipið Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn Kaldbakur EA 1.  Hinn ísfisktogarinn Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn Árbakur EA 5.

 

Skipstjóri á Kaldbak EA 1 verður Sigtryggur Gíslason en hann hefur verið skipstjóri á skipum Samherja um langt árabil, nú síðast á Björgvin EA 311. Kaldbakur fer nú í slipp hjá Slippnum á Akureyri og gert er ráð fyrir að skipið haldi til veiða í byrjun september.

 

Ekki er fyrirhugað að Árbakur fari til veiða á næstunni.