Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, segir í svari við erindi Samherja að skjal það sem Kastljós byggði umfjöllun sína á hinn 27. mars 2012 sé ekki í vörslum Ríkisútvarpsins. Af þessu má ljóst vera að þegar útvarpsstjóri og fréttastjóri fordæmdu þátt Samherja í síðustu viku höfðu þau ekki kynnt sér málið, því þau höfðu ekki gögnin undir höndum.
Hinn 12. ágúst síðastliðinn sendi Arnar Þór Stefánsson, lögmaður, erindi til Ríkisútvarpsins fyrir hönd Samherja. Þar var þess óskað að „skýrsla“ sú sem Kastljós byggði umfjöllun sína á og sögð var stafa frá Verðlagsstofu skiptaverðs yrði afhent Samherja nú þegar fyrir lægju yfirlýsingar Ríkisútvarpsins og starfsmanna þess um að skjalið væri sannarlega til.
Útvarpsstjóri svaraði erindinu í gær. Þar segir: „RÚV hefur ekki umrætt skjal í fórum sínum lengur. Það var notað við vinnslu Kastljóssþáttar árið 2012 og afhent Seðlabankanum að hans ósk í febrúar það ár.“ Þá segir útvarpstjóri að eðlilegast sé að „beina beiðni um afhendingu skjalsins til Verðlagsstofu skiptaverðs eða eftir atvikum Seðlabanka Íslands.“
Svar útvarpsstjóra er athyglisvert fyrir þær sakir að í yfirlýsinu sem Þóra Arnórsdóttir birti hinn 11. ágúst síðastliðinn segir að um hafi verið að ræða skýrslu „sem var 3 blaðsíður og undirrituð af þáverandi forstjóra Verðlagsstofu skiptaverðs“ og að skýrslan hafi sannarlega verið „borin undir Seðlabankann, sem óskaði eftir og fékk afrit af henni.“
Svar Stefáns Eiríkssonar, útvarpstjóra, varpar ljósi á þá athugun sem fór fram hjá Ríkisútvarpinu eftir að þáttur Samherja um upphaf Seðlabankamálsins fór í loftið þriðjudaginn 11. ágúst. Í yfirlýsingu útvarpsstjóra og fréttastjóra þann dag var meginfullyrðingu Samherja, um að engin skýrsla hafi verið samin, hafnað. „RÚV hafnar þessu sem röngu,“ sagði þar. Umrædd yfirlýsing var gefin út þremur klukkustundum eftir að þáttur Samherja var sýndur. Svar útvarpsstjóra við erindi lögmanns Samherja bendir til þess að útvarpsstjóri og fréttastjóri hafi í reynd ekki vitað hvort Ríkisútvarpið hefði skýrsluna undir höndum, eða hvers eðlis skýrslan væri, áður en yfirlýsingin var birt. Eru því sterkar vísbendingar um fullyrðingar í yfirlýsingunni hafi verið settar fram án vitneskju um hvort þær væru sannar. Hljóta það að teljast býsna ámælisverð vinnubrögð af hálfu stofnunar sem vinnur í þágu og umboði almennings.