Sr. Svavar blessaði Akureyrina EA-110

Akureyrin EA 110, sem Útgerðarfélag Akureyringa gerði út til fjölda ára undir nafninu Sléttbakur EA 304, lét í fyrsta skipti úr höfn á Akureyri í gær undir merkjum Samherja hf. Skipstjóri er Guðmundur Freyr Guðmundsson, Sigurbjörn Reimarsson er fyrsti stýrimaður og Helgi Magnússon yfirvélstjóri. Tuttugu menn eru í áhöfn.
sr_svavar_blessar1
Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í
Akureyrarkirkju, flytur hugvekju í borðsal
Akureyrarinnar. Með honum á myndinni er
Sigurbjörn Reimarsson, fyrsti stýrimaður og
afleysingaskipstjór

Smíðað í Noregi 1968

Eins og áður hefur komið fram kemur núverandi Akureyrin EA 110 í stað gömlu Akureyrarinnar, sem var fyrsta skip Samherja en hefur verið selt til dótturfélags Samherja í Skotlandi. Akureyrin hefur á undanförnum vikum verið í slipp í Slippstöðinni hf. þar sem skipið var málað í litum Samherja. Einnig voru gerðar breytingar á vinnsludekki skipsins og nýr löndunarkrani settur á það. Skipið lítur mjög vel út, þrátt fyrir háan aldur. Það var smíðað í Sjövikgrend í Noregi árið 1968, en keypt til Útgerðarfélags Akureyringa árið 1973. Árið 1987 var skipið lengt og því breytt í frystiskip. Eftir breytingarnar var burðargetan 902 lestir, en var áður 781 brúttólest.

Sr. Svavar blessaði skipið

Áður en Akureyrin lét úr höfn í gær kom áhöfn saman í borðsal skipsins til stuttrar helgistundar ásamt stjórnendum Samherja og gestum. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, flutti stutta hugvekju og blessaði skipið, en Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri, lét þess getið við þetta tækifæri að fyrir því væri hefð hjá Samherja að áður en skip færi í fyrstu veiðiferð undir merkjum félagsins væri kallaður til prestur til þess að blessa það.

Þorsteinn Már sagði að útgerð þessa skips markaði ákveðin tímamót hjá Samherja. Gamla Akureyrin EA, fyrsta skip Samherja, færi brátt til annarra verkefna erlendis þar sem það fengi annað nafn, en gamla nafnið færðist yfir á gamla Sléttbak EA. "Ég treysti því að þetta nafn fari vel á þessu skipi og að það verði farsælt," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson.

Á karfaslóð fyrir vestan

"Til að byrja með geri ég ráð fyrir að við förum á karfaslóð fyrir vestan," sagði Guðmundur Freyr skipstjóri, skömmu áður en siglt var út Eyjafjörðinn. "Mér líst mjög vel á skipið. Þrátt fyrir háan aldur lítur það mjög vel út og það er greinilegt að því hefur verið haldið vel við. Þetta verkefni leggst vel í mig. Það sem öllu máli skiptir er að vera með góða og samhenta áhöfn," sagði Guðmundur Freyr, en hann er þaulvanur til sjós, með hléum hefur hann verið meira og minna á sjó síðustu átján ár, síðast var hann skipstjóri á Hjalteyrinni EA-310

"Afburða gott sjóskip"

tremenningar1
Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson
við skipshlið ásamt Áka Stefánssyni, sem kom á
sínum tíma með skipið til Akureyrar og var þar
skipstjóri tólf fyrstu árin sem ÚA gerði skipið út
undir nafninu Sléttbakur EA-304.

Meðal þeirra sem voru á bryggjunni á sjötta tímanum í gær, þegar Akureyrin EA lét úr höfn, var Áki Stefánsson, skipstjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa til margra ára. Áki þekkir vel til þessa skips, því hann kom með það á sínum tíma til landsins og var skipstjóri á því í tólf ár, frá 1973 til 1985. "Þetta er afburða gott sjóskip," sagði Áki þegar hann horfði á eftir Akureyrinni út Eyjafjörðinn. "Við settum okkur strax strangar reglur um umgengni um borð og eftir þeim reglum var í hvívetna farið. Mér þótti vænt um að heyra að skipið færi ekki frá Akureyri, ég er viss um að útgerð þess hjá Samherja á eftir að ganga vel," sagði Áki Stefánsson.