Nýliðar á öllum aldri gátu fengið lánaðan búnað og leiðsögn og stóð dagskráin frá kl. 16.30 til kl. 20.00. Grillveislan var við nýja nestishúsið á skaflinum við hótelið, þar stóðu fulltrúar Skíðafélags Akureyrar og reiddu fram kærkomna næringu fyrir útivistargarpana. Veðrið lék við okkur á þessum mjög svo ánægjulega eftirmiðdegi og gleði skein úr öllum andlitum.