Uppsjávarveiðiskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, var sýnt almenningi laugardaginn 9. apríl. Skipið kom fyrst til Akureyrar 2. apríl á síðasta ári en sökum heimsfaraldursins var ekki hægt að sýna skipið opinberlega.
Skipið lá við Oddeyrarbryggjuna að lokinni loðnuvertíð. Óhætt er að segja að stutt sé á milli vertíða, því Vilhelm Þorsteinsson lét úr höfn í gær, sunnudag, á kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu.
Um eitt þúsund gestir skoðuðu skipið á laugardaginn og spurðu áhöfn skipsins um margvíslegt er verðar tækni og aðstöðu um borð í þessu glæsilega og vel búna skipi. Björgunarsveitin Súlur á Akureyri sá um að taka á móti gestum og gæta þess að alls öryggis væri gætt í hvívetna.
Þórhallur Jónsson ljósmyndari var á staðnum. Um leið og Samherji þakkar öllum kærlega fyrir komuna, látum við hér fylgja nokkrar myndir sem Þórhallur Jónsson tók.
Takk fyrir komuna, okkar var ánægjan !