Þátttaka í sýningunni

Seagold Ltd.:

seag3_heimas.tif.
Gústaf Baldvinsson og Danny Ross frá
T. Quality, á sýningarbás Seagol

Dagana 30-31. mars s.l. tók Seagold Ltd., sem er sölufyrirtæki Samherja hf., þátt í sýningu á vegum eins stærsta viðskiptavinar fyrirtækisins á Bretlandi. Um var að ræða sýninguna "Quick service catering Expo 2003" sem haldin var í Donnington.

Þetta var í fjórða skipti síðan 1993 sem sýningin er haldin og hefur Seagold / Samherji alltaf verið þátttakandi.

 

 

seagfjolsk4_heimas.tif.
Starfsmenn Seagold og fjölskyldur á góðri stund í sýningarlok

Áherslur Seagold á sýningarbás fyrirtækisins voru á sjófrystan fisk en margir þeirra 2.500 gesta sem sóttu sýninguna eru eigendur Fish & Chips búða.

Sýning sem þessi er einstakt tækifæri fyrir starfsfólk Seagold að hitta og ræða við búðareigendur. En sá fiskur sem Seagold selur af skipum Samherja og dótturfélaga endar að lang mestu leyti sem hráefni í þjóðarrétt breta, Fish & Chips.