Breytingar á skipastól Samherja hf.:
Gengið hefur verið frá samningi um sölu á fjölveiðiskipinu Þorsteini EA til Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. Með í kaupunum fylgir 1,25% aflahlutdeild í loðnu, 2% hlutdeild í kolmunna og 1,1% hlutdeild í íslenskri síld. Söluverð er 1.360 milljónir króna. Sala þessi myndar hvorki söluhagnað né sölutap hjá félaginu.
Skipið verður afhent nýjum eigendum þann 30. nóvember n.k
Fréttatilkynning frá Samherja hf. 9. september 2003