Tjón af völdum bruna

Eldur braust út í fiskimjölsverksmiðju Samherja hf. í Grindavík gær, ekki var um það að ræða að starfsmenn væru í hættu.  Allmiklar skemmdir urðu á húsakosti bræðslunnar en ljóst er að hluti tækjabúnaðar er óskemmdur...
Fréttatilkynning frá Samherja hf.:
Fiskimjöl og Lýsi í Grindavík

Eldur braust út í fiskimjölsverksmiðju Samherja hf. í Grindavík gær, ekki var um það að ræða að starfsmenn væru í hættu.  Allmiklar skemmdir urðu á húsakosti bræðslunnar en ljóst er að hluti tækjabúnaðar er óskemmdur.

Ljóst er á þessari stundu að verksmiðjan verður ekki starfrækt í bráð en framundan er einn annasamasti tíminn í fiskimjöls, lýsis og hrognaframleiðslu.  Fyrirtækið er tryggt fyrir tjóninu bæði með fasteigna- og rekstrarstöðvunartryggingu. 

Afleiðingar brunans koma hins vegar til með að hafa neikvæð áhrif á allar uppsjávarveiðar og hrognavinnslu félagsins og þar með á afkomu félagsins fyrstu þrjá mánuði ársins.  Hversu mikil áhrif, er ekki hægt að segja á þessari stundu en unnið er að því að minnka áhrifin með því að tryggja starfsemi hrognavinnslu félagsins í Grindavík.